19nóvember
Nenni ekki að vera í bloggheiminum legur... ætla bara að halda mig við myspace..
Hafið það sem allra best
inga þórey
24október
já síðan síðast....
- vinna, vinna
- þjónaði í 100 ára afmælisveislu, til hamingju inga þórey, hélt þetta myndi aldrei gerast
- fór svo á rúntinn með söndru og ólu
- ég og óla rúntuðum alla nóttina hehe
- byrjaði í þessari viku í bootcamp
- það er ógeðslega erfitt
- ég hef ekki enn fengið neina strengi samt ótrúlegt en satt
- krakkarnir eru bara kettlingar;)
- var í fitumælingu.. ætla að ná mér niður í 9%fitu
- ég er að deyja úr skóla þessa dagana, próf, ritgerðir og fyrirlestrar
- næstu helgi ætla ég til nesk
- vona að ég komist á showið hjá henni þóru minni
- langar á palla sem er á nesk núna um helgina
- en ég ætla að vera á ak að læra
- ég á afmæli eftir nokkra daga
- 8. nóvember
- það er bannað að gleyma því því annars hlýturðu verra af hehe..
Nenni þessu ekki meir
Takk fyrir mig
Inga Þórey ofurhetja;)
13október
sæl
ég vil nú sjá einhver komment hérna ef þið viljið að ég bloggi;)
Ég læt allavega á þetta reyna í þetta skiptið...
Allt að gerast í nafla norðurlandsins þessa dagana...
Sjallinn stendur fyrir sínu alveg klárlega...
Fór á lokahóf Þórs með andra og þeim jájá það var svosem ágætt.. þar má samt til gamans geta að rímið hjá andra og janna var nú með því betra þarna;)
Síðan skelltum við okkur í fyrirpartý til sölku og svo var sjalli... þetta var leiðinlegur sjalli og það var nú beilað feitt á þessu kvöldi..hmmmm taka það til sín sem eiga það við skulum bara orða það þannig;)
Svo voru í svörtum fötum síðustu helgi það var reyndar GEÐVEIKT við erum að tala um það að þeir komi ekkert á sjónarsviðið á næstunni þessir gæjar... ég elskaðá...:)
Litla krúttið mitt kom heim og allt hringsnýst í kringum þetta barn þessa dagana hehe...
- Ég hef eiginlega ekkert að segja sko...
- Er á nesk það er ekkert spes.. langar aftur til ak..
- Fullt af prófum þannig að þið sjáið mig ekkert næstu daga, gaman að því!!!
En jæja þá er þetta gott í bili...
Inga þórey
22september
Þá er ég komin í heiðardalin.. búin að koma mér fyrir og svona, það var löngu vitað mál að ég kæmi ekki með blogg strax, og jújú petra mín það er net hérna í fína sæta húsinu mínu í fannagilinu;) ég bíð bara eftir því að þú komir og ætlir þér að fá kex og mjólk með mér??
Jæja, skólin byrjaði sinn vanagang á mánudaginn þegar við náðum í stundaskrár og allt varð rosa gaman þá... Annars er ég að fíla þessa önn og hef mikinn áhuga á þessu námi, aldrei þessu vant! Mikið lært og minna um blogg, en samt alltaf eitthvað,, vona ég:)
Víkingur bróðir var að koma í skólann og varð hann því fyrir því óláni eða láni?? hmm að vera busaður... já mér fannst það allavega gaman fyrir 2 árum síðan...:)
Honum var hennt í kafarabúning, þar sem hann var busaður eitthvað spes og meira en hinir, þar sem þeir þurrftu bara sundhettu og gleraugu... ;)
Hann spriklaði þarna og gerði sig að fífli uppá sviði frammi fyrir allri kvosinni, það var fyndið!!
Svo voru réttir... það var gaman að hlusta á þessi grey jarma pínu..:) En eitthvað varð nú mislukkað í þessum réttum sem við viljum ekki nánar útí fara hérna!:/
En allavega það sem er fyrir mestu er að ég er komin á fullt skrið í náminu og er búin að koma mér fyrir hérna á Akureyri.. er semsagt flutt í bókstaflegri merkingu...
Það má alls ekki gleyma því að ég fór suður núna þarsíðustu helgi og keypti inní herbergið mitt í ikea og svona og svo fór ég á stórtónleika með CHIS CORNELL með kamillu, sunnu og fleirum það var GEÐVEIKT eitt það eftirminnilegasta sem ég hef upplifað:D
Þar sem ég var mjög sorgleg og ákvað að blogga kl hálf 3 á föstudagskvöldi... þá bíð ég góða nótt því ég er farin að sofa
Inga Þórey
28ágúst
Núna síðasta föstudag var haldið sumarstarfspartý hjá Olís Neskaupstað... þetta var ótrúlega skemmtilegt... Þar sem ég var í skemmtinefndinni, augljóst hvað maður er eitthvað skemmtilegur;) Neinei, þetta tókst bara rosalega vel, dagbókin, verðlaunaafhendingar og stólaleikur fannst mér nú standa gjörsamlega uppúr þessu öllu saman.... Svo miklir húmoristar hjá Olís að það er nú meira hehehe...:P
Ég fékk einmitt viðurnefnið "Fitnessdrottning Olís" og fékk peru skyr.is að gjöf heheh...
En næstu dagar hjá mér munu einkennast af gleði og ánægju, eða ég veit það ekki...!
Einkennast af pakkningum og síðustu dögunum í Olís... Ég á eftir 6 vinnudaga.. 8 daga til að pakka niður öllu dótinu mínu og einn frídag þangað til ég fer úr bænum:S jesús góður!!!
Ég verð semsagt alfarin til Akureyrar á miðvikudagsmorguninn í næstu viku;) Ég hlakka mikið til!!!
Daginn eftir að ég kem í heiðardalinn þá fer ég suður til Reykjavíkur.. mmm alltaf ótrúlegur stemmari á þessu flatlendi jájá.... En eitt getur þá allavega kætt mig og það eru tónleikarnir með Chris Cornell... ætla að skella mér á þá með kamillu og Sunnu og einhverjum fleirum vinum þeirra :)
En allavega... þangað til ég verð komin á minn stað fyrir norðan...
Inga Þórey..
P.S. það er ógeðslega stutt þangað til skólinn byrjar... 16. sept.. ÆÐI!!
12ágúst

jæja þá hafa 2 merkishelgar liðið síðan síðast...
Fyrst ber að nefna verslunarmannahelgina... hún einkenndist af mikilli vinnu og miklu djammi.... byrjaði á því að vinna á fimmtudagskvöldið og skellti mér svo með stelpunum í upphitunardjamm fyrir helgina á barnum... það var fínt,!
Föstudagur vinna til hálftólf og svo með Þóru og þeim á Tinu turner og brján.... Vinna á laugardegi og svo fór ég og hitti Sunnu, Stebba og Magga.... endaði þannig að maggi fór með einhverju fólki... Sunna komst ekki á ballið hehehehehe;) svo ég og Stebbi fórum þá bara ein hehe... endaði síðan þarna með Stefaníu vinkonu minni frá eskifirði:P
Á sunnudagskvöldið var ég að vinna til 10 mætti síðan til sigfúsar sunnu og stebba allt of seint á varðeldinn... náði samt flugeldasýningunni... Fórum síðan á ball!! það var gaman... týndi þeim síðan og endaði aftur með stefaníu HAHAHA:D
Svo á mánudaginn fluttu sunna og sigfús.. ég sakna þeirra:(
Núna á föstudaginn fór ég til akureyrar.... fór á dalvík með andra og við ætluðum að finna húsið hjá loga og svanhildi og þegar við fundum það þá var fiskisúpan hja þeim búin... hitti bara sólveigu þar.. gaman gaman...
Fórum síðan heim til ak og ég klippti andra hann er rosalega sætur núna eins og glöggir menn vita þar sem ég var með skærin í hönd;) Fórum síðan á rúntinn með Jóhanni Helga...!
á laugardaginn vaknaði ég snemma afþví ég var að fara skoða húsið sem við erum aðf ara að flytja í á ak.... það var flott.. ég er í herbergi í bílskúrnum með sér inngang og öllu... ÆÐI!!! síðan fórum við ég andri og jói og hittum stebba og karen.... fórum á búlluna og fórum á dalvík... keyrðum þar meðal annars yfir golfvöll ogsvona hehehehe;) svo þegar heim var komið var rúntað og síðan farið heim til jóa og pantað pízzu.. svo var spjall og klipping fram eftir öllu þar sem svenni og selli komu einnig í þetta gríðarpartý... ég held að aðal númerið hjá strákunum sé að gera mig að feitabollu með ofáti og kókosbolluáti... jesús,,! Fórum á rúntinn og það var gaman:)
í morgun fórum við halla saman á sallatbarin og fórum síðan í sund og ég renndi síðan bara úr bænum,,,
Núna eru einungis 24 dagar í það að ég flytji í Fannagilið og bara mánuður í að ég byrji í 3.F::D:D:D það verður gaman!!!
Sakna ykkar strax;*
Inga Þórey
06ágúst
Jæja þá er komið að þessu ég er að fara flytja til Akureyrar... eftir svo margra margra ára bið....
Ég hlakka til.., Það verður ótrúlega gaman!!:)
Takk
Inga Þórey
31júlí
Ég nenni aldrei að blogga.. mér finnst samt tími vera kominn til...!
Ég var í Reykjavík í síðustu viku.. það var gaman... hitti elskurnar mínar þar... Einar minn, Margréti, Elvu, Ingibjörgu og hinn og þennan.. kvaddi litlu bræður sem báðir voru að fara til útlanda:/ og ég bara home alone með ma og pa í viku... æði!!
Víkingur er að standa sig vel og ég er stolt af honum.. var að keppa við Englendinga í gær og var í byrjunarliðinu og alles.. ekki hægt að byðja um meira;) stolt af þér ástin mín;**Marteinn er líka góður í bobby núna í Englandi...:)
Ég gisti bara útum allar trissur þegar ég var í borginni hehehe, gaman að taka eina þannig ferð:D
Verslaði svoleiðis af mér rassgatið, sem ég ætlaði svo sannarlega EKKI að gera því ég er að fara til Danmörku einhverntímann á næstunni..!
En núna eru einungis 3 dagar í Neistaflug í Neskaupstað... það er komin mikill stemmari fyrir því..! mikið af fólki að koma í bæjinn og svona.. þetta verður svaka svaka stuð sko;) ekkert smá gaman býst ég við... langar samt mun meira á Ein með öllu....!:/ Sýnist allir Akureyringarnir mínir vera að beila á mér sem ætluðu til mín:( púhh.. ekki gott...
En ég nenni ekki að blogga meira...
P.S. Eitt hérna.. býðiði spennt því ég kem með svaðalegar fréttir hérna á blogginu sennilega bara jaaa í næstu viku;) :D
Kv.
Inga Þórey
18júlí
Ég vil tileinka þetta blogg, afmælisbörnunum mínum... henni Sunnu sem er tvítug í dag;)

Jónínu sem varð 18 ára skvísa í gær;)

Bjarney sem varð 19 ára á laugardaginn síðasta:)

og Vilborg sem verður 18 ára á þriðjudaginn næsta:)

Til lukku með dagana skvísurnar mínar;*
11júlí
Ég var að koma frá Akureyri rétt áðan og hérna kemur ferðalýsingin..!
Þegar ég kom fór ég beint á landsleikin Island-Danmörk (old boys) doldið fyndið að sjá þarna Dóra Áskells, Mola og þessa gæja hlunkast þarna inná vellinum eftir nokkura ára stopp hehe;)
Þegar leikurinn var búin var ferðinni haldið heim til Finnsa frænda þar sem hann beið okkar með glóðvolga hammara beint af grillinu.. mmmmh..
Hljóp til Telmu og Páls og sá litla hundinn þeirra gaman gaman... svooo sætur en ég held hann elski mig ekki!!:/ SKRÍTIÐ
Fór út á rúntinn ætlaði víst í eitthvað Þór og KA partý sem mér hafði verið boðið í og var svo tilkynnt að það hafi verið stoppað ÁÐUR en ég komst á staðinn hehe:P
Þá komu bara Andri Ásgríms og Kristján Páll með okkur Höllu á rúntinn!! Meira fjörið;) gaman að hitta þetta lið..!
Daginn eftir skelltum við Andri okkur í sund þegar ég náði loksins að vakna hehe.. og þar hittum við Jonnu og Baldvin..! var þar mikið gaman og mikið fjör, fórum í blak í lauginni og svona ýmislegt.. Setti líka heimsmet í að vera lengi inn í gufunni, ég kafnaði næstum því hehe:D Eftir langa sundferð skelltum við okkur á subway og rúntuðum aðeins til þess að melta það.. fórum svo í brynju á eftir mmmm, og rúntuðum enn meira...! Mér tókst meira að segja að treysta baldvini fyrir bílnum mínum hehe;)
Um kvöldið var síðan bara grill með famillýunni og svona skemmtilegt:)
Mánudagurinn var þannig að ég fór í ræktina á Ak mmm það var gaman að koma þangað aftur.. fékk nýtt fitness prógramm hjá honum Sigga í ræktinni þannig nú getur maður farið á fullt með nýtt og endurbætt prógramm;)
Fór síðan til Söndru minnar í ljósastofuna og skellti mér í ljós... eftir það þegar hún var búin í vinnu fórum við í sund:) Síðan heim til söndru í sveitina og borðuðum salatbarinn okkar:) Rúntuðum svo um kvöldið og hitti ég hann Arnar... gaman að sjá þig drengur;)
Þriðjudagurinn... Inga Þórey var veik! ég og Halla kíktum síðan í bæjinn og ég náði að kaupa mér girnilegar buxur;) Fórum síðan á Nings fyrir mig og sub fyrir Höllu og heim að horfa á spólu.. fórum svo og keyptum ís og horfðum svo meira á spólu og skelltum okkur síðan bara í svefninn! já það er ekki gott að vera slappur:(
í dag þegar ég vaknaði fór ég að halda áfram að horfa á myndir með höllu hehe..
Svo fór ég og hitti Jonnu mína og við skelltum okkur í sund:) ekkert smá gaman, lágum þar flatar í tvo og hálfan tíma:) gott svona áður en maður leggur í hann..! Svo hitti ég líka hana Völlu í sundinu;)
Brunaði svo heim og hérna er ég, LANGAR TIL AK...:(
Sá húsið sem ég er að fara búa í.. stórt og flott raðhús á tvem hæðum, lýst vel á þetta;)
Ég er að fara vera ein heima næstum í viku:o
jæja jæja bless bless
Issa kveður:)